Taka tvö, var búin að skrifa heljar blogg sem birtist svo
ekki, búin að finna út að ég get ekki bloggað á internet explorer, svo að núna
verð ég að reyna að rifja upp það sem ég skrifaði áður :o(
En vika 4 & 5 eru löngu liðnar og líka vikur
6,7,8,9,10,11 &12 en hreyfingin hefur svo sem verið á sínum stað hjóla
daglega í vinnuna og fer á skíði 5-6 x í viku, svo ég er nú bara í þokkalegum
málum.Nú fer að síga á seinnihlutann
með skíðin og þá tekur við hlaupatímabilið.Ætla að dusta rikið af Riddara prógraminu frá í fyrra og aðlaga það að
mínum aðstæðum.Síðan er ég búin að
undirstinga aðra hlaupakonu sem ég kynntist í skíðaklúbbnum um að stofna
hlaupagrúbbu hér í Hosle.Verður fínt að
hlaupa í félagsskap 2 x í viku og fara svo sjálf aðra daga.
Ferbrúar og mars voru viðburðaríkir mánuðir og var þar VM á
skíðum sem skaraði uppúr.Það var
frábært að geta skellt sér upp í Holmennkollen og fylgst með þessari flottu
keppni „live“.Muggur var að vinna á marksvæðinu
alla dagana og komst annsi nærri skíðahetjunum og öllu sem þeim fylgir.Við stelpurnar fórum 3x að horfa á og það var
magnað.Silja Rán og Rannveig komuVM vikuna og voru í Kollen nær alla daga og
nutu sín í botn, þær hefðu að sjálfsögðu átt að vera þarna sem keppendur fyrir
Ísland, en þær fengu allavega skíðafílinginn aftur og eru búnar að sækja um að
vera sjálfboðaliðar á næstu VM á Ítalíu.Áttu góða daga hvort sem það var HM í Kollen eða H&M í Osló :o)
Í mars fórum við svo til Lillehammer og allir tóku þátt í
einhverri göngu.Ég gekk Inga Laami 30
km kvennagöngu, það var frábært eins og í fyrra skiptið 2007.Það var sól og flott veður, mikil stemming, brautin
er skemmtileg og krefjandi, ég var búin að æfa þokkalega fyrir þetta en
dagsformið var ekki alveg eins og ég vonaði og náði ekki þeim markmiðum sem ég
setti mér að vera undir 2 tíma.Hekla
gekk 15 km ungdoms birken og Muggur 28 km half birken, þeim gekk báðum
vel.Edda Lind gekk svo barna birken og
stóð sig frábærlega.Hafði tvo íslenska
keppunauta sem hún stakk af.Við vorum
svo tekin í viðtal af kynninum og Edda Lind sérstaklega þegar hún kom í mark.Kynninum fannst svo frábært að það væru
íslendingar að keppa og ssem kunnu norsku í þokkabót :o)við hittum vini okkar Bigga og Þorgerði og
börn sem voru í vetrarfríi ásamt Daníel Jakobs, Völu og börnum, áttum með þeim
frábært kvöld í hyttunni sem þau leigðu.Við gistum hjá Ashild og Trond, virkilega gaman að hitta þau og frábært
hvað Ashild vill halda í tengslin við Ísafjörð.Við stelpurnar fórum svo heim með lestinni á sunnudeginum en Mugur varð
eftir til að fara á 2 daga námskeið.Vinalegt
að koma aftur til Lillehammer, ég vildi búa þar ef við værum ekki hér í Hosle.
Annasr er bara búið að vera það sama, vinna,æfa, borða,
sofa...heheh vorið kemur meira og meira með hverjum deginum og nú get ég nánast
hjólað á auðu í vinnuna.Var orðin
frekar þreytt á að hjóla í snjó og slabbi, en í dag fjárfesti ég í nýju hjóli
og nú er spurningin hvort ég eigi að fara alla leið í hjólamennskunni og fá mér
...hjólaskó!!
Annars eru myndir af herlegheitunum úr VM og Lillehammer inn
á myndasíðu Muggs, endilega kíkið á það
Kveðja Jóna Lind...sem er búin að eyða annsi löngum tíma í
þetta blogg
argggggg er búin að vera að vesenast í þessu bloggi og það hafa ekki komið inn færslur sem ég var búin að skrifa og þá verður maður svo argur. Prófa einu sinni enn og svo gefst ég upp... En það er búið að vera nóg að gera og lífið í frekar föstum skorðum...vinna og skíða hehe. Æfingarnar eru mest hjólið og svo skíðaæfingarnar og hlaupin koma svo aftur inn í vor. Nóg að gera í vinnunni og bara gaman, er að undirbúa vetrarútivistadag en hann mun þó ekki toppa minn frábæra vetrarútivistardag á Eyrarskjóli. Hér eru nokkrir með veikindadaga í áskrift og það er frekar pirrandi en ég hef ekki einu sinni fengið hor í nös. Stelpurnar hafa svo verið að keppa að undanförnu og gengið bara ágætlega, ég og Muggur þurfum svo að finna nýja göngu til aðstefna á, mig langar þó mikið að fara upp til Lillehammer í Inga Laami gönguna. Enn allavega verður þessi helgi nýtt til skíðaiðkunnar í þessum frábæra snjó sem hefur kyngt niður undanfarna daga.
jæja vikurna r rjúka áfram og alltaf nóg að gera, finnst ég vera með skipulag frá því ég vakana á morgnana þart til ég fer að sofa aftur...en svona er þetta bara og verður enda þrífst ég best í skipulagi og að hafa hlutina á hreinu. Í þessari viku átti ég afmæli, bara rólegheita dagur og ekki mikið umstang. Bakaði hjólavæna köku til að fara með í vinnuna og svo var ég með góðan mat og eftirrétt fyrir heimilisfólkið. ísland rústaði Noregi í handboltanum sem var nú frábær endi á deginum. áaugardaginn tókum við Muggur þátt í göngumóti í Fossum, auglýst 25 km ganga en mældist svo bara 21 km, en mjög gaman að ganga og gekk vel, brautin krefjandi og mikið upp ámóti. Í dag var svo hekla að keppa og Muggur fór með henni, gekk sæmilega og þarf að fara að herða sig aðeins. ég og edda fórum aftur á móti í fína túr í nágreninu en hér er flott braut á golfvellinum og yfir í Bærums marka, fullt af fólki, sól og flott veður og við að sjálfsögðu með heita safrt og súkkulaði í bakpokanum. æfingarnar eru eftirfarandi:
Jæja þá er enn ein vika liðin og hún var nú bara svona lala... en hreyfing þó. Snjórinn er eitthvað að gera mér erfitt að hjóla og hlaupa en ég læt það samt ekki stoppa mig. Nóg að gera í vinnunni og svo er alltaf eitthvað á dagskrá eftir vinnu eins og þjálfun ÖHIL stelpnanna á mán og miðvikudögum, fara sjálf á skíðaæfingu, síðan vorum við með vinagrúbbu fyrir Eddu hóp á föstudaginn, þá komu 5 stk krakkar með henni heim og svo komu foreldrarnir í kaffi seinnipartinn og svo voru stelpurnar að keppa á helginni og þá er nú lítið annað gert. Ég náði þó að fara aðeins út að hlaupa í dag og það var mjög fínt. Svo er að hefjast ný vika og ný markmið...tek þátt í 25 km göngu á næsta laugardag, það verður spennandi. Enn svona var vika 2:
Mánudagur: Skíði 5 km (var að þjálfa)
Þriðjudagur: Hjól 8 km
Miðvikudagur: Hjól 8 km, skíði 6 km (þjálfun)
Fimmtudagur: Hjól 8 km, skíði 9,6 km
Föstudagur: Hjól 8 km
Laugardagur: Hvíld, mót hjá stelpunum
Sunnudagur: Hlaup 10 km
Kveðja Jóna Lind...sem er loksins búin að fá nýja sófann
Nú er nýtt hreyfingar ár hafið og ný markmið sett, byrja bara í góðum gír og þarf ekkert sérstaklega að hugsa um aðhald bara að halda áfram á beinu brautinni sem ég var komin á. Hreyfinginn hefur verið í góðum málum og mataræðið bara normal. Hafði það fínt um jólin og fór á skíði næstum daglega, mislangar æfingar en sú lengsta var 22 km sem var bara frábær túr. Í vetur verður hjólað daglega í vinnu nema kannski þá daga sem mikil ófærð er, er búin að prófa það og það er ekki að virka sérstaklega vel. Síðan eru skíðaæfingar 4-5 x í viku og svo hlaup þegar hægt er. Síðan munu hlaupin taka við þegar skíðaæfingarnar hætta. Í vetur ætlum við svo að taka þátt í nokkrum löngum túrgöngum sem er bara spennandi og gott að hafa eitthvað til að stefna að. í vikunni fékk ég svo loksins Garmin hlaupaúr og nú verður spennandi að æfa og sjá árangur. og svo er að læra á græjuna og finna út hvernig hægt er að nota niðurstöðurnar. En svona var vikan hjá mér:
Mánudagur: Skíðaæfing 12 km Þriðjudagur: Hjól 8 km Miðvikudagur: Hjól 8 km, skíðaþjálfarakúrs 5 km (3 tímar verklegt) Fimmtudagur: Hjól 8 km, mikill snjór og erfitt að hjóla Föstudagur: Hvíld...strætó í vinnu Laugardagur: Keppnisdagur hjá stelpunum Sunnudagur: Skíðaæfing 12 km
Klaáraði verkefnastjóranámskeið í Ollweus, Reykjavíkurferð og hitti góðar vinkonur
Enn eitt afmælið...en skvísan samt síung og spræk
Mikið um útihlaup...snjólaust í janúar !!
Skelltum okkur á Þorrablót í Neskaupstað...lítið mál að renna þangað frá Ísafirð
Febrúar:
Enn viðrar vel til útihlaupa
Hjólaði í vinnuna...ótrúlegt í febrúar
Svo kom skíðasnjórinn
Mars:
Skíða og hlaupaæfingar á fullu
Undirbúningur fyrir Skíðaviku
Rakel og fjölskylda komu til Ísafjarðar
Sprettganga Núps
Apríl:
Stífar skíðaæfingar
Páskavikan gekk vel
Fór í nammibindindi með stelpunum
Ferming hjá Emblu
Vorum í viku á Akureyri v/ Andrésar Andarleikana
Hekla Dögg 13 ára og tvöfaldur Andrésarmeistari
Edda Lind varð í 2.sæti báða dagana
Fékk hrikalega augnsýkingu
Maí:
Fossavatnsgangan 50 km, 4:18
Byrjaði að hjóla daglega í vinnuna
Hlaupaæfingar taka við af skíðaæfingunum
Var boðið í Bostonferð...sem var svo aflýst vegna gosins :o/
Skruppum suður í brúðkaupsveislu
Lokahóf SFÍ
Vigurferð og útskrift í leikskólanum
Aðalfundur SFÍ og kláraði þar með formennsku
Byrjaði að skrá æfingar á Hlaupadagbókinni...263,3 km að baki í maí
Júní:
Hlaup, hlaup, hlaup...
Ákvörðun tekin um fluting til Noregs, byrjað að huga að pökkun
Hlaup og pökkun til skiptis
Hjóla daglega í vinnu
Ættarmót
hlaupadagbók í júní 295,8 km
Júlí:
Síðasta vinnuvikan á Eyrarskjóli...komin í ársleyfi
Sumarslútt Eyrarskjólspæja á Tálknafirði, mikið fjör
Hlaup, hlaup,hlaup...
Sumarfrí !!
Bobba og fjölsylda komu vestur og áttu með okkur yndislegar vikur
Hlaupahátíðin, 21,1 km Óshlíðarhlaup og 12 km Vesturgata...bara frábært!!
Reykjarfjörður...æðislegt frí með frábæru fólki
Tæma húsið...úfff það var erfitt, líkamlega og andlega
Hlaupadagbók júlí var 235,2 km
Ágúst:
Neskaupstaður, barðsneshlaup, afslöppun, böll, sund, gönguferð úr Neskaupstað yfir í Mjóafjörð
5.ágúst brottför með Norrænu
Stopp í Færeyjum í 3 daga, skoðunarferðir og hlaupaæfingar
Sumar og sól í Noregi
Silja kom í heimsókn
Nárameiðsli :o(
Fengum hús í Bærum
Hlaupadagbók 132 km
September.
Þurfti að draga úr hlaupaæfingum vegna nárameiðsla
Gámurinn kom...
Göngur og hjólaæfingar
Rútína að komast aftur á fjölskyldunna
Hlaupadagbók varð þrátt fyrir allt 138,4 km
Október:
Byrjaði að vinna í Hullebergmyra barnehage í Ullern Oslo
Fjölskyldan kom öll í heimsókn í tilefni af 60 ára afmæli mömmu...mjög gaman
lélegur bloggmánuður
Hreyfing að komast aftur í rétt horf
Hlaupadagbók 162,3 km
Nóvember:
Hjóla daglega í vinnu og mun gera það í allan vetur
Fór á þjálfaranámskeið í skíðgöngu hjá ÖHIL
Fékk nagladekk undir hjólið mitt
Muggur afmæli
Silja Rán afmæli...og við fjarri :o/
Skíðavertíðin hóft aftur
Jólaundirbúningur
Hlaupadagbók 153, km
Desember:
Fór á a-ha tónleika...alveg frábært
Luciafeiring í vinnunni...ný upplifun
Skrítin jólamánuður í leikskólanum, mun ólíkara en í íslenskum leikskólum
Silja, Ásthildur og Kristján komu í jólafrí
Afmæli hjá Eddu
Fín jól...mikið skíðað
Róleg áramót
Hlaupadagbók 163,5 km
Svona var nú árið mitt í grófum dráttum, mikið brallað, mikið æft og bara nokkuð gott ár. Stefni á enn betra ár 2011 Kveðja Jóna Lind...sem er sátt með árangur ársins
já jólaundirbúningurinn hér í Noregi hefur bara verið á rólegum nótum og mjattlast jafnt og þétt og ekkert jólastress í gangi. Hér varð mikil gleði þegar Silja kom og erum við búin að eiga góða daga með henni. Fórum í jólabæinn Bærums Verk, fórum í miðbæ Oslóar og versluðum smá. Systurnar stóru eru búnar að fara saman í bíó og svo niður í miðbæ. Ég var í fríi á mán og þri, en var kölluð í vinnu á þriðjudeginum vegna skorts á starfsfólki. á Þorláksmessu átt ég svo síðustu vakt og var í vinnu til kl 5, Þorláksmessan hér er nokkuð öðruvísi en á Íslandi en við vorum nú svo lánsöm að geta keypt skötu og því var skata og tilheyrandi á boðstólnum hér á Þrláksmessu. lentum svo í því að það varð rafmagnslaust hjá okkur þar sem öryggi hafði brunnið yfir út í götu. Hér var því bara setið vð kertaljós á Þorláksmessukvöld...og ég sem var í miðjum klíðum að strauja sængurfötin okkar. Á aðfangadag var farið á skíði, en ég var svo heppin að tengdamamma gat verið heima og passað kjötið í ofninum. frábært að komast út og hreyfa sig fyrir komandi át. Maturinn heppnaðist vel, púrrulaukssúpa (þar sem ekki fansst frosin humar) sænsk jólaskinka sem var eldup eins og um hamborgarahrygg væri að ræða og bragðaðis bara mjög vel. konfekt og kaffi, en allr voru of saddir fyrir jólaísinn. Spiluðum og heyrðum í ættingjum á Íslandi. Allir fengu glás af fallegum og nytsamlegum gjöfum, kærar þakkir fyrir okkur ættingjar á Íslandi. Ég fékk ný skíði frá Muggi...annsi óvænt en nú get ég sko spanað á nýjum keppnisskíðum. Einnig fengum við flotta krumma og málverk frá Silju, hannyrðir frá Eddu og skálar frá Heklu, ásamt bókum og konfekti frá Íslandi. Ég tala nú ekki um skipulagsdagatalið góað frá Rakel og co...nú verður allt undir kontról á þessu heimili hehe. Stelpurnar voru líka mjög ánægðar með allar sínar gjafir. Semsagt bara yndisleg jól
já tíminn líður eitthvað svo ósköp hratt þegar árin eru talin hjá börnunum, þessi litla stelpa er svo nýfædd og nú er hún orðin 9 ára. Dagurinn í dag var bara yndislegur, vaknað snemma og það beið pakkaflóð eftir afmælisstelpunni og svo var tekið upp þegar henni hafði tekist að vekja dauðþreyttu ferðalangana. Að vanda voru afmælispönnsur og svo hófst undirbúningurinn fyrir veislur dagsins. Bekkjarsystur Eddu komu kl 12:00 og það var mjög skemmtilegt og gekk bara vel. Síðan komu íslenskir vinir okkar hér úr nágreninu og þeirra börn og það var mjög gaman. Afmælisstelpan er alsæl með daginn, fékk flottar gjafir og margt af því var á óskalistanum góða. Innilega til hamingju með daginn þinn elsku Edda Lind
Annars er bara allt gott að frétta af okkar vígstöðvum, langþráðir gestir komnir í hús, ótrúlega gott að knúsa stóru stelpuna mína. Jólaundirbúningur gengur bara vel, búið að fara til Svíþjóðar og gera hagstæð jólainnkaup,heimsækja vinkonu í AS, baka, jólagjafir klárar og svo er bara að njóta síðustu dagana fyrir jól. Ýmislegt sem var látið bíða eftir Silju,eins og konfektgerð og loftkökubakstur. Stefnan tekin í Bærums Verk á morgun en þar er flott jólaþorp og hreindýr...loksins sjáum við hreindýr eftir margar tilraunir austur á landi hehe
Konan sem ætlaði að vera svo ofurdugleg að blogga hefur nú haft lítin tíma til þess,svo nú er bara öllu skellt í eitt blogg. Hreyfinginn hefur verið á sínum stað eins og vanalega, mikið hjólað, hlaupið aðeins og nú fer skíðavertíðin að hefjast á fullu, svo ég er nú í góðum málum með hreyfingu og viktin sýnir mér tölu sem ég er glöð með...án þess að ég sé í súper dúper aðhaldi. Stefni á að taka nokkrar langar almenningsgöngur hér í vetur.
Óska svo diggum lesendum ánægjulegra daga fram að jólum, gaman væri nú að fá kvitt frá fleirum sem koma hér inn.
Ný albúm komin inn...endilega að skoða það
Kveðja Jóna Lind...sem er svo glöð að hafa allar stelpurnar sínar
...hefur á daga mína drifið síðan síðast, en frúin allveg að smella í gírinn "að hafa svo mikið að gera" dagarnir bara fljúga frá mér. En í síðustu viku fórum við Muggur á tónleika með a-ha, þetta voru fjórðu síðustu tonleikarnir en nú ættla þeir kappar að hætta. þetta var mikil upplifun að vera á svona live tónleikum og gæjar eru bara flottari en þeir voru fyrir 25 árum. Því miður var bannað að taka myndir svo ég á ekki myndir af mér á tónleikunum.
Síðan erum við búin að vera í jólagjafastússi en það er nú allt frágengið og komið heim til íslands og jólakortin sömuleiðis...allt undir kontról hjá frúnni en svo styttist í afmæli hjá Eddu og verður dagurinn undirlagður í veislm , fyrst fyrir bekkjarsystur og svo fyrir vini hér í nágreninnu. Ekki spillir fyrir að Silja Rán, Ásthildur og Kristján verða komin. Um síðustu helgi var svo bakstursdagur en þá komu Stefán, Erna og Tekla í piparkökubakstur og Söru smurning, það var flottur og skemmtilegur dagur. Í vinnunni er nóg að gera og gaman að upplifa aðrarjólahefðir en heima, bakaði t.d. lussekatter í fyrsta sinn sem heppnuðust bara fullkomlega, en það verður boðið upp á þá næsta mánudag en þá er Luciafeiring. Annars innst mér jólastemmingin í íslenskum leikskólum mun skemmtilegri, hér kann ég t.d engin jólalög og þau eru svo löng og flókin, og það er lítið um skreytingar en það er kannski ekki að marka í mínum skóla sem er með niðurskurðarhnífinn á lofti. Annars er margt skemmtilegt í vændum sem ég blogga um síðar...ef ég nenni (eins og frændi minn syngur
Kveðja Jóna Lind...sem er búin að baka helling af Höllukökum
Jæja þá kemur enn eitt hreyfingarbloggið...gott fyrir sálartetrið, þ.e. mitt Ágætis vika í hreyfingu en nokkur hálka og erfitt að hlaupa, þarf að fjárfesta í broddum eða gormum. Fór á mína fyrstu skíðaæfingu á laugardaginn sem var bara frábært, var svo sem róleg æfing þar sem Edda gekk með mér en tók spretti inn á milli. Fórum í Sollighögda en liðið hennar Heklu æfir þar á meðan ekki er snjór í Fossum.
Annars er allt fínt að frétta aðventan byrjuð og norðmenn eru í óðaönn að setja upp jólaljós og mikil jólastemming. Mér finnst þetta bara huggulegt og er nú þegar búin að baka tvær sortir. Stefnum svo á piparkökubakstur á næstu helgi með Stefáni, Ernu og Teklu.
Og nú eru bara tveit dagar í tónleikana með AHA...
Um mig: Er nammigrís og reyni svo ađ bćta fyrir ţađ međ ţví ađ hreyfa mig reglulega. Hlaup og gönguskíđi er máliđ. Er einnig mjög önnum kafin í félagsstörfum og fundasjúk segir dóttir mín :o) Ekki er nú verra ađ vera ofurskvísa og góđ vinkona og finnast gaman ađ ferđast og hafa ţađ skemmtilegt...alltaf!!